Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fös 27. febrúar 2026 15:42
Elvar Geir Magnússon
Silva: Þetta er áfall fyrir okkur
Kevin Santos Lopes de Macedo.
Kevin Santos Lopes de Macedo.
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Kevin, dýrasti leikmaður Fulham, verður frá í margar vikur vegna meiðsla á fæti. Hann fór af velli í sigri gegn Sunderland og þarf líklega á aðgerð að halda.

Fulham mætir Tottenham um helgina og Marco Silva, stjóri Fulham, segir það mikið högg að missa Kevin út. Þessi 23 ára leikmaður kom frá Shakhtar Donetsk í september og var fainn að finna sig vel í enska boltanum.

„Þetta er áfall fyrir okkur, klárlega. Þetta er mikið högg fyrir okur og hann líka persónulega. Við vorum byrjuð að sjá ástæðuna fyrir því að við keyptum hann. Við höfum mikla trú á honum," segir Silva en Fulham er í baráttu um Evrópusæti.

„Í þessum leik gegn Sunderland þá var hann einn besti leikmaður vallarins þær 40 mínútur sem hann spilaði."

Eins og gengur og gerist á föstudögum voru margir stjórar í ensku úrvalsdeildinni með fréttamannafundi. Fram kom meðal annars að Charly Alcaraz, sóknarmiðjumaður Everton, verður frá næstu þrjár til fjórar vikurnar og miðjumaðurinn Lewis Cook verður ekki með Bournemouth næstu vikur.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner