Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
banner
   fös 27. febrúar 2026 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leiðin nokkuð greið fyrir Arsenal í undanúrslitin
Mike Arteta, stjóri Arsenal.
Mike Arteta, stjóri Arsenal.
Mynd: EPA
Leiðin fyrir Arsenal í undanúrslit Meistaradeildarinnar lítur út fyrir að vera nokkuð greið. Liðið vann deildarkeppnina og á pappírunum er það að skila sér með „þægilegri" leið í undanúrslitin.

Arsenal mætir þýska liðinu Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitunum. Leverkusen vann Olympiakos í umspilinu.

Sigurvegarinn úr einvígi Arsenal og Leverkusen mætir svo sigurvegaranum úr viðureign portúgalska liðsins Sporting og norska spútnikliðsins Bodö/Glimt.

Í undanúrslitunum bíða svo Newcastle/Barcelona/Atletico/Tottenham.

Arsenal getur ekki mætt stórliðunum PSG, Liverpool, Real Madrid, Manchester City, Bayern Munchen eða Chelsea fyrr en í úrslitaleiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner