Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 10:34
Elvar Geir Magnússon
Bruno í endurhæfingu í Brasilíu
Bruno verður frá næstu tvo mánuðina.
Bruno verður frá næstu tvo mánuðina.
Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Bruno Guimaraes, lykilmaður Newcastle, verður frá i tvo mánuði eða svo en hann meiddist illa á læri í sigri gegn Tottenham.

Newcastle verður án Bruno í mikilvægum leikjum, þar á meðal komandi einvígi í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Bruno er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Newcastle en frá því hann gekk til liðs við félagið hefur liðið aldrei unnið leik þegar hann er ekki í byrjunarliðinu.

Bruno er kominn heim til Brasilíu þar sem hann er í endurhæfingu á æfingasvæði Atletico Mineiro.

„Ég hef verið í góðu sambandi við Bruno og hann heldur í jákvæðnina. Hann hefur lagt á sig mikla vinnu og það er passað vel upp á hann. Það þarf að fara varlega með meiðslin og við vonum að hann komi með innspýtingu í lokin á tímabilinu," segir Eddie Howe, stjóri Newcastle.

Varðandi meiðslalista Newcastle eru enn um tvær vikur í Lewis Miley, það er stutt í Tino Livramento og mögulegt er að Jacob Ramsey verði með á morgun þegar liðið leikur gegn Everton.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 18 7 3 56 21 +35 61
2 Man City 27 17 5 5 56 25 +31 56
3 Aston Villa 27 15 6 6 38 28 +10 51
4 Man Utd 27 13 9 5 48 37 +11 48
5 Chelsea 27 12 9 6 48 31 +17 45
6 Liverpool 27 13 6 8 42 35 +7 45
7 Brentford 27 12 4 11 40 37 +3 40
8 Bournemouth 27 9 11 7 43 45 -2 38
9 Everton 27 10 7 10 29 31 -2 37
10 Fulham 27 11 4 12 38 41 -3 37
11 Newcastle 27 10 6 11 38 39 -1 36
12 Sunderland 27 9 9 9 28 33 -5 36
13 Crystal Palace 27 9 8 10 29 32 -3 35
14 Brighton 27 8 10 9 36 34 +2 34
15 Leeds 27 7 10 10 37 46 -9 31
16 Tottenham 27 7 8 12 37 41 -4 29
17 Nott. Forest 27 7 6 14 25 39 -14 27
18 West Ham 27 6 7 14 32 49 -17 25
19 Burnley 27 4 7 16 29 52 -23 19
20 Wolves 28 1 7 20 18 51 -33 10
Athugasemdir
banner
banner
banner