Nýliðar Þórs á Akureyri hafa verið að vinna í að styrkja leikmannahóp sinn fyrir baráttuna í Bestu deildinni í sumar.
Í gær tilkynnti félagið um komu ganverska kantmannsins Isaac Antanga frá sænska félaginu Kalmar. Í vetur hefur félagið einnig fengið Ágúst Eðvald Hlynsson og Atla Sigurjónsson.
Í gær tilkynnti félagið um komu ganverska kantmannsins Isaac Antanga frá sænska félaginu Kalmar. Í vetur hefur félagið einnig fengið Ágúst Eðvald Hlynsson og Atla Sigurjónsson.
Þórsarar eru ekki hættir á leikmannamarkaðnum og eru að reyna að fá Bjarna Guðjón Brynjólfsson heim en Bjarni er uppalinn hjá Þór.
Fyrir tímabilið 2024 fór Bjarni, sem verður 22 ára á morgun, í Val en var síðan lánaður til FH. Hann gekk svo alfarið í raðir FH fyrir síðasta tímabil. Hann kom við sögu í 13 leikjum með FH í Bestu deildinni í fyrra.
Greint var frá því í hlaðvarpsþættinum Kjaftæðið hér á Fótbolta.net að Þór væri að reyna að fá Bjarna.
Athugasemdir



