4. umferðin í Inkasso-deildinni hefst í dag. Leikið er í deildinni næstu daga en umferðinni lýkur á sunnudaginn.
Jóhann Laxdal var með þrjá rétta þegar hann spáði til um úrslitin fyrir síðustu umferð.
Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Vals, fær það verkefni að spá í leikina að þessu sinni.
Jóhann Laxdal var með þrjá rétta þegar hann spáði til um úrslitin fyrir síðustu umferð.
Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Vals, fær það verkefni að spá í leikina að þessu sinni.
Leiknir R. 2 - 1 Leiknir F. (14:00 í dag)
Ein sterkasta varnalína 1. deildar. Veit fyrir víst að herra Leiknir Halldór Kristinn hefur engan húmor fyrir að það séu tvö leiknislið.
Keflavík 1 - 1 Selfoss (19:15 í kvöld)
Tvö góð lið og verður jafntefli niðurstaðan á Reykjanesinu.
Grótta 2 - 1 Þróttur R. (19:15 á morgun)
Grótta er með tvo ljónharða í brúnni á nesinu og efnilega þjalfara. Held að þeir komi á óvart og fylgi eftir sigri í síðasta leik og vinni sterkt lið Þróttara. Veit þetta er langsótt en treystið mér.
Fram 2 - 1 ÍR (19:15 á morgun)
Fram eru bara sterkari þó svo að ÍR sé búið að koma á óvart.
Þór 2 - 2 Haukar (16:00 á laugardag)
Finnst skrýtið hvað Þór hefur byrjað illa. Það verður spennandi að sjá Haukana í þessum leik. Þeir eru með marga spennandi leikmenn og þetta verður hörkuleikur.
HK 1 - 0 Fylkir (17:00 á sunnudag)
Fylkir eru ógnasterkir og vanmeta HK í þessum leik. Hákon Þór með markið. Hann býr hjá mér og er búinn að vera með námskeið í markaskorun heima.
Sjá einnig:
Ásgeir Þór Ingólfsson (3 réttir)
Jóhann Laxdal (3 réttir)
Hallgrímur Mar Steingrímsson (1 réttur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir