Franska liðið Strasbourg er komið áfram í 8-liða úrslit franska bikarsins eftir 3-1 sigur liðsins á Mónakó í kvöld. Julio Enciso, framtíðarleikmaður Chelsea, skoraði tvö fyrir Strasbourg sem mætir Reims í næstu umferð.
Fílabeinsstrendingurinn Martial Godo skoraði á 22. mínútu og sá til þess að Strasbourg færi inn í hálfleikinn með eins marks forystu, en á 55. mínútu bætti Enciso við öðru marki.
Framherjinn Mika BIereth minnkaði muninn þremur mínútum síðar áður en Enciso gerði annað mark sitt um það bil hálftíma fyrir leikslok.
Enciso kom til Strasbourg frá Brighton síðasta sumar, en hann er hugsaður sem framtíðarleikmaður Chelsea. Bæði Chelsea og Strasbourg eru í eigu BlueCo og hafa margir leikmenn flakkað á milli þessara liða síðasta eina og hálfa árið.
Strasbourg tryggði sig áfram í 8-liða úrslitin með þessum sigri og mætir Reims sem gefur liðinu mjög góðan möguleika á að komast lengra í keppninni, en Reims spilar í B-deildinni í Frakklandi, en Strasbourg verður fyrsta A-deildarliðið sem það mætir í bikarnum í ár.
Athugasemdir

