Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 22:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásgeir fór í sprautu vegna hnémeiðsla - Óljósar niðurstöður úr myndatöku
Kom að tólf mörkum á síðasta tímabili.
Kom að tólf mörkum á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir í lok bikarúrslitaleiksins gegn Víkingi 2024.
Ásgeir í lok bikarúrslitaleiksins gegn Víkingi 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Sigurgeirsson fann fyrir hnémeiðslum í desember. Slúðrað var um það í Þungavigtinni að Ásgeir væri með slitið krossband en það virðist ekki vera raunin.

Ásgeir, sem er 29 ára sóknarmaður, fór í stera sprautu vegna meiðslanna í síðustu viku og bíður nú eftir að hún geri sitt gagn. Hann er óviss hvenær hann getur byrjað aftur að spila.

„Staðan á mér bara þokkaleg. Ég fór í stera sprautu í síðustu viku og er að bíða eftir að hún fari að virka almennlega. Það getur tekið einhvern tíma," segir Ásgeir.

„Ég hreinlega veit ekki alveg hvenær ég kemst aftur á völlinn aftur. Ef allt gengur upp þá ætti ég að vera kominn í einhvern bolta í æfingaferðinni í lok mánaðar. Ég er ekkert að þrýsta á að vera mættur aftur sem fyrst eins og staðan er í dag, ég bara gef þessu tíma."

Ásgeir hefur tvívegis slitið krossband á ferlinum. Þar sem slúðursagan var á þá leið, óttaðist hann að það hefði gerst í þriðja sinn?

„Niðurstöðurnar úr myndatöku voru smá óljósar. En tilfinningin var aldrei að það væri sltiið. Ég veit í raun ekki hvað gerðist, ég byrjaði bara að bolgna upp í desember," segir Ásgeir.

Fékk hrós frá þjálfara sínum
Ásgeir átti gott tímabil í Bestu deildinni í fyrra, hann byrjaði 20 leiki og kom alls við sögu í 26 af 27 leikjum KA. Hann skoraði fimm mörk og lagði upp sjö í deildinni. Hann uppskar hrós frá þjálfara sínum í viðtali við Fótbolta.net fyrr á þessu ári.

„Ásgeir er búinn að vera flottur, ef tölfræði hans er skoðuð síðustu ár þá er hún góð miðað við spilaðar mínútur. Hann er ekki orðinn þrítugur og við erum í fínum málum með fremstu stöðu. Þetta eru 27 leikir og bikarleikir, mikið álag. Ásgeir á sína meiðslasögu og það er ekki sanngjarnt til þess að hann geti tekið alla leiki 90 mínútur. Hann er ekki þar í dag, en hann er frábær fyrir okkur þegar hann spilar," sagði Hallgrímur Jónasson fyrir tæpum mánuði síðan.
Athugasemdir
banner
banner