Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
banner
   fim 05. febrúar 2026 12:10
Elvar Geir Magnússon
Heimild: mbl.is 
Áhorfið á Big Ben stóð ekki undir væntingum
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttastjóri Sýnar.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttastjóri Sýnar.
Mynd: Sýn
„Big Ben var ekki að ná því áhorfi sem lagt var upp með og því ákváðum við að taka hann af dagskrá í núverandi mynd," segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttastjóri Sýnar, í samtali við mbl.is.

Eins og fjallað hefur verið um hafa tveir þætti sem voru kynntir sem hluti af umfjöllun Sýnar um enska boltann verið teknir af dagskrá; Big Ben og Varsjáin.

Eiríkur segir að áhorfið á þættina hafi ekki staðið undir væntingum, sífellt sé verið að endurmeta dagskrána og ekki útilokað að annar þáttur með breyttu sniði með Gumma Ben verði settur á dagskrá.

Þá bendir Eiríkur á að þó umræddir þættir hafi verið teknir af dagskrá séu enn þættir á borð við Doc Zone og Sunnudagsmessuna á Sýn Sport.

Í Big Ben ræddi Guðmundur Benediktsson við Hjálmar Örn Jóhannsson, Kjartan Henry Finnbogason og gesti um fótbolta, handbolta og fleiri íþróttir.
Athugasemdir
banner
banner