Umsjónaraðilar enska deildabikarsins útiloka það að reglum verði breytt á yfirstandandi tímabili. Pep Guardiola, stjóri Manchester City, er óánægður með að varnarmaðurinn Marc Guehi verði ekki löglegur í úrslitaleiknum gegn Arsenal þann 22. mars.
Guardiola hefur sagt að City muni biðja um að umrædd regla verði endurskoðuð en nú er ljóst að það verður ekki gert á þessu tímabili.
Guardiola hefur sagt að City muni biðja um að umrædd regla verði endurskoðuð en nú er ljóst að það verður ekki gert á þessu tímabili.
Guehi, sem var keyptur frá Crystal Palace þann 19. janúar, er ekki löglegur samkvæmt reglu um að leikmaður megi spila með tveimur félögum í keppninni sama tímabil, ef hann gengur í raðir seinna liðsins áður en undanúrslitin fara af stað.
Antoine Semenyo, sem var keyptur 9. janúar, er því löglegur og lék með City í undanúrslitunum. Guehi kom hinsvegar til City eftir fyrri undanúrslitaleikinn gegn Newcastle.
„Vonandi skrifum við bréf og vonandi verður þetta endurskoðað. Ég skil ekki þessa reglu. Vonandi er hægt að breyta henni," sagði Guardiola.
Athugasemdir




