Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
banner
   fim 05. febrúar 2026 19:59
Brynjar Ingi Erluson
Glasner vonsvikinn með að hafa ekki landað McNeil - „Var búinn að undirbúa æfingu með honum“
Dwight McNeil klárar tímabilið með Everton
Dwight McNeil klárar tímabilið með Everton
Mynd: EPA
Oliver Glasner vildi fá McNeil
Oliver Glasner vildi fá McNeil
Mynd: EPA
Everton-maðurinn Dwight McNeil var hársbreidd frá því að ganga í raðir Crystal Palace undir lok gluggans en skiptin fóru ekki í gegn þar sem ekki var nægur tími til að ganga frá samkomulagi og skila inn gögnum.

Crystal Palace lagði fram tilboð í McNeil á síðustu klukkutímum gluggans en skilyrðunum var breytt á síðustu stundu sem flækti málin.

Loks þegar samkomulag náðist reyndist það of seint og fór því McNeil í fýluferð til Lundúna.

Kærasta enska vængmannsins sagðist ósátt með Palace og sagði félagið spila með andlega heilsu hans og fjölskyldunnar, en Oliver Glasner, stjóri Palace, segist sömuleiðis vonsvikinn með að hafa ekki landað honum.

Austurríkismaðurinn vildi ólmur fá McNeil og segir að hann hefði styrkt liðið gífurlega.

„Við erum öll vonsvikin með að hafa ekki getað gengið frá þessum skiptum. Ég var búinn að undirbúa æfingu með honum daginn eftir gluggalok, en svona hlutir geta gerst á gluggadegi. Það er svo margt sem getur farið úrskeiðis, en mér var sagt að samkomulaginu hafi verið breytt á síðustu klukkustundunum og þá var ekki nægur tími til stefnu til að ganga frá skiptunum.“

„Þetta gekk ekki upp og ég get vel skilið að hann og fjölskyldan séu vonsvikin, en trúið mér þegar ég segi að mér leið eins því ég er ótrúlega hrifinn af þessum leikmanni. Hann hefði verið okkar reyndasti úrvalsdeildarleikmaður með 250 leiki og aðeins 26 ára gamall. Við erum ekki með örvfættan sóknarmann og hefði hann verið frábær fyrir föstu leikatriðin.“

„Hann skorar alltaf fjögur til sex mörk og er með sex til níu stoðsendingar á tímabili sem er nákvæmlega það sem við erum að leita að. Við erum öll vonsvikin að geta ekki gengið frá þessu.

„Því miður fór þetta svona og skil ég vel vonbrigði hans og deili þeim,“
sagði Glasner.
Athugasemdir
banner
banner
banner