Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 21:09
Brynjar Ingi Erluson
Alfons opnaði markareikninginn í svekkjandi bikartapi
Mynd: Go Ahead Eagles
Alfons Sampsted skoraði sitt fyrsta mark fyrir hollenska félagið Go Ahead Eagles í kvöld, en það dugði því miður til að komast í undanúrslit bikarsins.

Alfons kom til félagsins frá Birmingham á dögunum og átti ekki beint þá draumabyrjun sem hann óskaði sér.

Hann sá rauða spjaldið í 1-1 jafntefli gegn Volendam í hollensku deildinni um helgina, en hann var ekki lengi að bæta upp fyrir það.

Telstar fékk Go Ahead Eagles í heimsókn í 8-liða úrslitum bikarsins í kvöld og tók forystuna undir lok fyrri hálfleiks en Alfons jafnaði metin með fyrsta marki sínu fyrir Eagles snemma í þeim síðari.

Alfons fékk boltann inn í markteignum, kom sér framhjá markverðinum og lagði boltann í netið. Mjög snyrtilegt hjá Alfons, en mark hans var ekki nóg.

Sjö mínútum síðar kom sigurmark Telstar úr vítaspyrnu eftir að liðsfélagi Alfonsar handlék boltann í teignum.

Svekkjandi úrslit fyrir Alfons og félaga sem eru úr leik en þvílíka ævintýrið hjá Telstar sem situr í botnsæti hollensku úrvalsdeildarinnar með aðeins 16 stig.

Þetta er í annað sinn sem Telstar kemst í undanúrslit og í fyrsta sinn síðan 1992.


Athugasemdir
banner