Helena Óska Hálfdánardóttir gekk í raðir Víkings á þriðjudag en hún kemur frá Val sem greindi frá því að Helena hefði verið seld til Víkings.
Helena er sóknarsinnaður leikmaður sem er nýorðin 25 ára. Hún ræddi við Fótbolta.net um skiptin.
Helena er sóknarsinnaður leikmaður sem er nýorðin 25 ára. Hún ræddi við Fótbolta.net um skiptin.
„Tilfinningin er frábær – ég er hæstánægð og get ekki beðið eftir að byrja," segir Helena sem kom við sögu í 21 leik í Bestu deildinni í fyrra.
Af hverju Helena komin í Víking?
„Eftir tímabilið í fyrra fann ég að ég þyrfti að skipta um umhverfi og Víkingur heillaði mig mest, ég fann strax að það er metnaður og vel staðið að öllu í kringum klúbbinn."
„Mér líst ótrúlega vel á þjálfarateymið og þær áherslur sem þeir eru með og mér finnst þær henta mér sem leikmanni. Ég hef mikla trú á því að þeir séu að fara gera frábæra hluti með liðið og ekki skemmir fyrir hvað stelpurnar eru fáránlega skemmtilegar."
„Já ég átti samtöl við nokkur lið bæði í Bestu og Lengjunni en eftir að ég talaði við Víking þá kom ekkert annað til greina."
Hvernig gerir hún upp tímann hjá Val?
„Tíminn minn hjá Val var svolítið upp og niður. Ég kem til Péturs og Öddu þegar ég er rétt að byrja sparka í bolta eftir krossbandsslit og ég er svo þakklát fyrir þann stuðning sem ég fékk frá teyminu sem hjálpuðu mér að komast aftur á völlinn eftir þau þrálátu meiðsl. Svo fann ég bara núna eftir síðasta tímabil að þetta væri ekki umhverfi sem ég væri að fara blómstra í. Í framhaldi af því átti ég samtal við Val og þeir sýndu því skilning."
Aðspurð segir Helena að það hafi ekki neitt sérstakt orðið til þess að hún hafi fundið að hún væri ekki í rétta umhverfinu. „Það var bara tilfinning hjá mér."
Hvert er markmiðið hjá Víkingi?
„Mig langar bara finna gleðina á ný – spila fótbolta og hafa gaman. Það er enginn staður betri en að gera það í Hamingjunni [Víkingsvöllur er stundum kallaður heimavöllur hamingjunnar]. Ég veit að ég á helling inni og get ekki beðið eftir að nýta það í að hjálpa liðinu í sumar."
Hver er uppáhaldsstaðan á vellinum?
„Ég spila allar fremstu stöður vallarins en mín besta og uppáhaldsstaða væri hægri kantur – negla þessum boltum fyrir markið," segir Helena að lokum. Hún er uppalin hjá FH og hefur einnig leikið með Fylki og Breiðabliki á ferlinum.
Athugasemdir


