Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
banner
   fös 06. febrúar 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sumarið 2025 mun svíða mjög lengi - „Hljóð og mynd fóru ekki beint saman"
Svekktur með takmarkað hlutverk á síðasta tímabili.
Svekktur með takmarkað hlutverk á síðasta tímabili.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Stokke skoraði sex mörk og lagði upp fjögur í 22 leikjum.
Stokke skoraði sex mörk og lagði upp fjögur í 22 leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Sumarið 2025, það mun svíða mjög lengi," sagði Arnór Gauti Ragnarsson við Fótbolta.net þegar hann gerði upp ferilinn í viðtali hér á Fótbolti.net á dögunum.

Framherjinn hjálpaði Aftureldingu að komast upp úr Lengjudeildinni 2024 en var í takmörkuðu hlutverki á síðasta tímabili. Afturelding sótti norska reynsluboltann Benjamin Stokke sem var oftast i byrjunarliðinu. Arnór Gauti byrjaði einungis fjóra leiki en Stokke var 21 sinni í byrjunarliðinu.

Stokke kom fyrst til Íslands fyrir tímabilið 2024 eftir að hafa orðið markakóngur með Kristiansund í norsku B-deildinni 2023. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2024 en var í nokkuð miklu aukahlutverki eftir að Ísak Snær Þorvaldsson komst á flug.

„Ég fór inn í tímabilið vonandi að ég myndi allavega spila mjög mikið af leikjum fyrir liðið mitt. Svo kemur Stokke inn, ég fór á fund og Maggi (Magnús Már, þjálfari liðsins) segir að sá mun spila sem stendur sig best á æfingum, en þar fer hljóð og mynd ekki beint saman. Þetta mun svíða mjög lengi. Með fullri virðingu fyrir Stokke þá ég mun ekki gleyma hversu erfitt það var að vera á bekknum leik eftir leik vitandi að maður geti örugglega gert aðeins meira."

Afturelding náði í góð úrslit framan af móti í Bestu deildinni en stigasöfnunin gekk verr seinni hluta móts og endaði Afturelding á því að falla úr deildinni. Norski framherjinn skoraði ekki í níu síðustu leikjunum sem hann spilaði.

Heldur þú að það hafi spilað inn í að hann var erlendur leikmaður og kannski dýrari leikmaður, og því veðjað frekar á hann?

„Já, alveg 100%. Það gerir það alltaf. En stundum verður maður að kyngja stoltinu. Ég hef upplifað það sjálfur að fara 2-3 leiki á bekknum og koma svo tvíefldur til baka. Stokke er frábær gaur, geggjaður í klefa og góður í fótbolta. En hann var ekki alveg að sýna sitt rétta andlit undir lokin, og það sveið."

„Ég og Maggi ræddum eitthvað minna saman. Ég er bara leikmaður og ræð engu. Það var eitthvað rætt, og ekki,"
sagði Arnór Gauti.
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Athugasemdir
banner
banner