Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   fös 05. maí 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Hallgrímur Mar spáir í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar
Hallgrímur Mar Steingrímsson.
Hallgrímur Mar Steingrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Gunnar Örvar skorar tvö samkvæmt spá Hallgríms.
Gunnar Örvar skorar tvö samkvæmt spá Hallgríms.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Keppni í Inkasso-deild karla hefst í kvöld en þá eru þrír leikir á dagskrá. Þrír leikir fara síðan fram á morgun.

Hallgrímur Mar Steingrímsson vann Inkasso-deildina með KA í fyrra og hann fær það verkefni að spá í fyrstu umferðina.

Leiknir R. 1 - 0 Keflavík (19:15 í kvöld)
Þessi leikur mun ráðast á einu marki í frekar bragðdaufum leik, enda tvö vel skipulögð lið sem gefa fá færi á sig. Elvar Páll mun að sjálfsögðu setjann!

HK 2 - 0 Fram (19:15 í kvöld)
Það er alltaf erfitt að fara í kórinn og spila við HK, nokkuð þæginlegur sigur hjá HK.

Selfoss 0 - 1 ÍR (19:15 í kvöld)
Spútnik lið Inkasso deildarinnar í sumar mun sækja risastóra punkta á Selfoss. Strömvélin og Stefán Þór Pálsson verða rosalegir saman í sumar.

Fylkir 2 - 2 Þór (14:00 á morgun)
Stórleikur umferðarinnar í mínum huga og einnig lang skemmtilegasti, það verður mikill æsingur í mönnum. Ég hef sterkan grun um rautt spjald. Þó ekki viss hvoru meginn. GÖ stimplar sig strax í mótið með 2 mörkum og Kristófer "Ferna" Viðarsson kemur inná í seinni og setur 1 úr aukaspyrnu.

Þróttur R. 0 - 2 Haukar (14:00 á morgun)
Hilmar Trausti er í þjálfarateymi Hauka, það segir allt. Hann tapar ekki fyrsta leik, og ekki mörgum i sumar! Baros og Björgvin sjá um að skora.

Leiknir F. 1 - 2 Grótta (14:00 á morgun)
Mjög erfiður leikur að spá fyrir um. En ég hallast að Gróttu sigri.

Spá fyrirliða og þjálfara í Inkasso-deildinni:
1. Keflavík 230 stig
2. Fylkir 222 stig
3. Þróttur R. 204 stig
4. Þór 161 stig
5. Selfoss 159 stig
6. Leiknir R. 141 stig
7. Fram 124 stig
8. Haukar 120 stig
9. HK 93 stig
10. ÍR 54 stig
11. Leiknir F. 41 stig
12. Grótta 35 stig
Athugasemdir
banner
banner
banner