Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
banner
   fim 05. febrúar 2026 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valdi Stjörnuna fram yfir Danmörku - „Stund sem ég mun alltaf muna eftir"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Stjarnan
Gustav Kjeldsen var á þriðjudag kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar og gerir hann tveggja ára samning í Garðabæ. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Vestra en samningur hans við Vestra rann út eftir síðasta tímabil.

Gustav er 26 ára örvfættur og hávaxinn varnarmaður sem kom til Vestra fyrir tímabilið 2023. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni á fyrsta tímabilinu, meiddist fyrir annað tímabilið en sneri til baka um mitt sumar og hjálpaði liðinu að halda sæti sínu í Bestu deildinni. Á síðasta tímabili var hann svo lyklmaður í liðinu sem varð bikarmeistari.

Fótbolti.net ræddi við Gustav um félagaskiptin.

„Tilfinningin að vera orðinn leikmaður Stjörnunnar er mjög góð. Stjarnan er metnaðarfullt félag með mjög góða leikmenn og sterka umgjörð sem það heillaði mig. Ég fann fyrir því að félagið vildi fá mig. Ég þekkti Andra (Rúnar Bjarnason) og Benó (Benedikt Warén) frá tímanum í Vestra og þeir töluðu mjög vel um félagið," segir Gustav.

Fótbolti.net heyrði af áhuga á Gustav frá félögum í dönsku 1. deildinni. Hann ræddi við félög um möguleikann á því að fara aftur til heimalandsins en honum fannst Stjarnan vera rétti kosturinn fyrir sig.

Hvernig var tíminn hjá Vestra?

„Ég átti þrjú mjög góð ár hjá Vestra. Ísafjörður er lítill bær langt í burtu og ekki svo mikið að gerast, en ég var með mjög góða liðsfélaga og þjálfara. Og ég get ekki sleppt því að nefna fólkið í og í kringum Vestra, þau tóku alltaf á móti mér með opnum örmum og brosi. Það gerði þetta allt miklu auðveldara."

„Tímabilið 2025 var frábært á marga vegu, sérstaklega að vinna bikarinn. Að lyfta bikarnum með Vestra, það var mjög sérstakur dagur og stund sem ég mun alltaf muna eftir."

„Við byrjuðum tímabilið mjög vel í deildinni, en ég veit ekki hvað gerðist eftir að við unnum bikarinn. Þetta var mjög pirrandi, en líka mjög verðmætur lærdómur. Þetta sýnir hversu fljótt hlutirnir geta breyst í fótbolta."


Hvað viltu afreka með Stjörnunni?

„Ég vil vinna. Ég vil berjast á toppi deildarinnar, spila Evrópuleiki og halda áfram að þróast sem leikmaður."

Það eru góðir varnarmenn í Stjörnunni og það verður samkeppni um stöðuna í liðinu. Hvernig líst Gustav á það?

„Tíminn mun leiða það í ljós hvernig þetta verður. Samkeppni gerir alla betri og þarf að vera til staðar. Ég er tilbúinn í að berjast fyrir sætinu í liðinu og sýna hversu góður ég er," segir Gustav að lokum.

Hann er núna staddur með Stjörnunni erlendis í æfingaferð.
Athugasemdir
banner
banner