Penninn er áfram á lofti hjá Skagamönnum en hinn ungi og efnilegi Jón Þór Finnbogason hefur nú skrifað undir samning sem gildir út 2028.
Jón Þór er 17 ára gamall sóknarsinnaður sem lék sína fyrstu meistaraflokksleiki síðasta sumar með Kára, venslafélagi ÍA, í 2. deildinni.
Hann lék alls fjóra leiki er Kári hafnaði í 9. sæti deildarinnar með 24 stig.
Þá á hann 3 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands og verið einn af máttarstólpum í sterkum 2. flokki félagsins undanfarin tvö ár.
Athugasemdir



