Tómas Johannessen er unglingalandsliðsmaður sem gekk í raðir hollenska félagsins AZ Alkmaar eftir tímabilið 2023. Tómas er uppalinn hjá Gróttu og Val og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Gróttu á fimmtánda aldursári. Hann var svo í stóru hlutverki sumarið 2023.
Hann hefur spilað með U19 liði AZ og varaliði félagsins frá komu sinni. Hann meiddist síðasta vetur á öxl og hefur það sett svip sinn á síðasta hálfa árið en hann sneri aftur á völlinn á þriðjudag.
Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Hann hefur spilað með U19 liði AZ og varaliði félagsins frá komu sinni. Hann meiddist síðasta vetur á öxl og hefur það sett svip sinn á síðasta hálfa árið en hann sneri aftur á völlinn á þriðjudag.
Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Tómas Johannessen
Gælunafn: Oftast kallaður bara Tommi
Aldur: 18 ára
Hjúskaparstaða: föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: spilaði fyrsta leikinn minn með Gróttu 2022 á móti HK í bikarnum og ég man ég kom inná í hálftíma sirka og ég var ekkert eðlilega lélegur
Uppáhalds drykkur: kristall
Uppáhalds matsölustaður: ég elska saffran og dominos
Uppáhalds tölvuleikur: allir leikir leiðinlegir núna, en vonandi kemur einhver nýr skemmtilegur
Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei, veit voðalega lítið um það
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: mér finnst You þættirnir mjög skemmtilegir
Uppáhalds tónlistarmaður: Rihanna og Aron Can
Uppáhalds hlaðvarp: Doctor Football
Uppáhalds samfélagsmiðill: instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi jr í gamla daga svo fyndinn, eða Auddi með hár
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Sorry order TC6DFP was cancelled. Your refunds on the way (if you were charged)
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Þór er alveg glatað lið
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Örugglega Lucas Bergvall
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Kristján Daði
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: úff svo margir, örugglega Kristófer Orri, hann er svakalegur tuðari.
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Ronaldo líklega
Sætasti sigurinn: Þegar við unnum Þór í lokaleik í Lengjudeildinni 2023 til að bjarga okkur frá falli
Mestu vonbrigðin: Að fara úr lið í þriðja sinn var vel þungt og leiðinlegt
Uppáhalds lið í enska: Man U
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Stíg Diljan, hann er mjög góður og hollenski húmorinn er oft verulega lélegur og þreyttur þannig flott að fá hann
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Eva Johannessen alltaf
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Gunnar Jónas er sætur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi:
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Myndi vilja styttri leik með engum hálfleik, svo erfitt að byrja aftur eftir pásu
Uppáhalds staður á Íslandi: Seltjarnarnesið
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: spilaði í fyrra móti Feyenoord og bakvörðurinn úr mínu liði kýldi hafsentinn okkar útaf einhverjum pirring, það var spes
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei enga
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: horfi alltaf á handboltann í janúar
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: nike er þægilegast
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Textílmennt, það er mjög flókið
Vandræðalegasta augnablik: klúðraði tveimur vítum í röð móti Ungverjalandi, sem betur fer skipti leikurinn engu
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Myndi bjóða Kjartani Má, Daníel Tristani og Stíg útaf það yrðu alltaf einhver fyndin rifrildi
Bestur/best í klefanum og af hverju: Addi bomba þegar ég var með honum í Gróttu, ótrúlega steiktur.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi senda Stefán Gísla í Survivor útaf hann er stundum lélegur að redda sér.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Kann sex tungumál
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Markús Páll, hélt að hann væri leiðinlegur með stæla en er algjör meistari
Hverju laugstu síðast: lýg mjög sjaldan, örugglega bara einhver falleg hvít lygi
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: hita upp er drepleiðinlegt. Við erum búnir að vera í sömu fyrirgjafaæfingu núna í tvær vikur, hún er líka leiðinleg.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Neymar um einhver góð tips.
Athugasemdir




