Englandsmeistarar Liverpool þurfa að greiða Chelsea allt að 6,8 milljónir punda fyrir enska vængmanninn Rio Ngumoha, en þetta ákvað sérstök nefnd sem sér um bótamál í fótboltanum á Englandi.
Ngumoha fór frá Chelsea árið 2024 og gekk í raðir Liverpool, en á þeim tíma var hann talinn einn allra efnilegasti vængmaður Lundúnafélagsins.
Englendingurinn lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool í sumar og skoraði síðan sigurmarkið í mögnuðum 3-2 sigri á Newcastle United snemma á tímabilinu.
Hann var aðeins 16 ára gamall þegar hann fór frá Chelsea og átti því félagið rétt á bótum þar sem hann æfði hjá félaginu upp yngri flokkana og sá um þróun hans.
Chelsea var vonsvikið með að missa hann til Liverpool og ákvað að senda málið fyrir nefnd sem tók ákvörðun um að Liverpool þurfi að greiða Chelsea 2,8 milljónir punda í bætur en sú upphæð getur hækkað upp í 6,8 milljónir punda ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Það veltur allt á spiluðum leikjum með Liverpool, samningum og landsleikjum sem hann mun spila í framtíðinni. Einnig mun Chelsea fá 20 prósent af hagnaðinum ef Liverpool ákveður að selja hann í framtíðinni.
Ngumoha er mikið efni en fengið takmarkaðan mínútufjölda á fyrstu leiktíð sinni. Hann hefur spilað 394 mínútur í 14 leikjum og gert eitt mark, sem var þetta eftirminnilega sigurmark gegn Newcastle í ágúst.
Í augnablikinu er það Liverpool sem hefur vinninginn í þessu máli enda algert tombóluverð fyrir efnilegan leikmann eins og Ngumoha, en ef Liverpool selur hann dýrt eftir nokkur ár mun Chelsea græða vel á sölunni.
Athugasemdir


