Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, ætla að velja framherjann Endrick í landsliðsverkefnið í mars. Marca greinir frá.
Brasilíumenn mæta Frökkum og Króötum í vináttulandsleikjum í loks mars og byrjun apríl.
Endrick hefur ekki verið í hópnum síðan í mars á síðasta ári, bæði vegna meiðsla og einnig vegna þess að hann var ekki að fá margar mínútur með Real Madrid.
Framherjinn óskaði eftir því að fara frá Real Madrid á láni og undir lok árs staðfesti félagið að hann myndi leika með franska félaginu Lyon út tímabilið.
Þar hefur hann aftur fundið krafta sína en Endrick er með fimm mörk í síðustu fimm leikjum og verið valinn maður leiksins í þrjú skipti.
Marca segir Ancelotti mjög ánægðan með frammistöðu Endrick og hafi ákveðið að velja hann í landsliðverkefnið í mars.
Það var einmitt markmið Endrick að komast aftur í landsliðsumhverfið fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar.
Athugasemdir



