Franski hægri bakvörðurinn Sacha Boey, sem er á mála hjá Bayern München er á leið til tyrkneska félagsins Galatasaray á láni út tímabilið.
Galatasaray hefur greint frá samkomulaginu á heimasíðu sinni og mun félagið hafa kauprétt á honum.
Boey, sem er 27 ára gamall, kom til Bayern frá Galatasaray árið 2024 en ekki tekist að festa sæti sitt hjá Bæjurum.
Hann lék með Rennes á sínum yngri árum en fór þaðan til Galatasaray árið 2021 þar sem hann varð deildarmeistari og einn af bestu leikmönnum deildarinnar.
Frakkinn á þrjá leiki að baki með yngri landsliðum Frakklands.
Profesyonel futbolcu Sacha Boey ve kulübü FC Bayern München AG ile futbolcunun 2025-2026 sezonunun kalan k?sm? için ?irketimizin yaz?l? talebine ba?l? zorunlu olmayan sat?n alma opsiyonlu geçici transferi konusunda anla?maya var?lm??t?r.
— Galatasaray SK (@GalatasaraySK) February 5, 2026
Sat?n alma opsiyonu, ?irketimizin tek… pic.twitter.com/CQpJMtTOO6
Athugasemdir


