Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 11:14
Elvar Geir Magnússon
„Ég er ekki Pedri, ég er Rodrigo Mendoza“
Rodrigo Mendoza til Atletico Madrid (Staðfest)
Rodrigo Mendoza til Atletico Madrid (Staðfest)
Mynd: EPA
Á gluggadeginum keypti Atletico Madrid miðjumanninn Rodrigo Mendoza frá Elche fyrir um 16 milljónir evra. Þessi tvítugi leikmaður ræddi við fjölmiðla í gær.

Mendoza er hæfileikaríkur leikmaður sem var meðal annars undir smásjá Arsenal.

„Sannleikurinn er sá að ég er virkilega ánægður með að vera hérna. Ég þakka félaginu fyrir traustið og mun leggja mig allan fram. Þetta er sérstök stund fyrir mig og fjölskyldu mína. Það er áskorun framundan," segir Mendoza.

Pedri, stórstjarna Barcelona, fór fögrum orðum um Mendoza nýlega og sagði að hann væri ekki ólíkur sjálfum sér sem leikmanni.

„Það er gaman þegar leikmaður eins og Pedri segir svona hluti, en ég er ekki Pedri. Ég er Rodrigo Mendoza og þarf að fara mína eigin leið," segir Mendoz um orð Pedri.

Þá segist leikmaðurinn ungi vera gríðarlega spenntur fyrir því að vinna með stjóranum Diego Simeone.

„Það þekkja allir kröfurnar sem hann er með. Þær munu gera mét gott. Ég veit hvers hann ætlast af mér. Ég þarf að þakka starfsliðinu og öllum hjá félaginu hvernig það hefur verið tekið á móti mér."

Atletico Madrid er í þriðja sæti í La Liga, níu stigum á eftir Real Madrid sem er í öðru sæti og tíu stigum frá toppliði Barcelona.


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 28 23 1 4 77 28 +49 70
2 Real Madrid 28 21 3 4 60 24 +36 66
3 Atletico Madrid 28 17 6 5 47 25 +22 57
4 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
5 Betis 28 11 11 6 43 35 +8 44
6 Celta 28 10 11 7 38 31 +7 41
7 Real Sociedad 28 10 8 10 43 42 +1 38
8 Espanyol 28 10 7 11 35 42 -7 37
9 Getafe 28 10 5 13 23 30 -7 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 28 9 7 12 33 35 -2 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Vallecano 28 7 11 10 28 34 -6 32
14 Valencia 28 8 8 12 30 42 -12 32
15 Sevilla 28 8 7 13 37 47 -10 31
16 Mallorca 28 7 7 14 33 45 -12 28
17 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
18 Elche 28 5 11 12 36 45 -9 26
19 Levante 28 5 8 15 30 46 -16 23
20 Oviedo 28 4 9 15 18 44 -26 21
Athugasemdir
banner