Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Tóku á móti Kante með 'blackface'
Með málninguna umdeildu.
Með málninguna umdeildu.
Mynd: Skjáskot
Þúsundir stuðningsmanna Fenerbahce mættu við flugvöllinn til að taka á móti miðjumanninum N'Golo Kante sem félagið fékk við gluggalok.

Tveir af þessum stuðningsmönnum tyrkneska liðsins hafa fengið hörð viðbrögð en þeir voru með svokallað 'blackface', málaðir svartir í framan og annar þeirra með nafn Kante skrifað.

„Að vera með „blackface“ er talið kynþáttaníð í sumum menningarheimum, þó að sumir fullyrða að það sé merki um aðdáun í Tyrklandi," segir í umfjöllun Daily Mail.

Kante varð heimsmeistari með franska landsliðinu en þessi 34 ára miðjumaður Chelsea yfirgaf Al-Ittihad og gekk í raðir Fenerbahce.

Skiptin virtust ekki hafa náð í gegn fyrir gluggalok en FIFA úrskurðaði svo að viðeigandi pappírar hefðu skilað sér á réttum tíma.


Athugasemdir
banner
banner