Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   fim 05. febrúar 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
Gittens verður lengi frá
Jamie Gittens.
Jamie Gittens.
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, segir að Jamie Gittens verði „lengi frá“ vegna meiðsla aftan í læri. Hann setur þó engan tímaramma á meiðslin.

Vængmaðurinn fór af velli á 26. mínútu í 3-2 endurkomusigri Chelsea gegn West Ham á laugardag og var ekki í leikmannahópi liðsins í deildabikarleiknum gegn Arsenal á þriðjudag.

Gittens hefur spilað 27 leiki fyrir Chelsea síðan hann kom frá Borussia Dortmund í sumar, skorað eitt mark og átt fjórar stoðsendingar.

Pedro Neto og Reece James misstu einnig af leiknum á þriðjudag og óvíst hvort þeir geti verið með á laugardaginn, þegar Chelsea heimsækir Wolverhampton Wanderers.

Cole Palmer og Estevao eru báðir klárir í að spila 90 mínútur gegn Úlfunum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner