Ronaldo gæti beðið um að fara til Sporting - Man Utd vill Anderson - Ungur Hollendingur á óskalistum Liverpool og Arsenal
   fim 05. febrúar 2026 22:03
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski bikarinn: Juventus steinlá fyrir Atalanta
Mynd: EPA
Atalanta 3 - 0 Juventus
1-0 Gianluca Scamacca ('27 , víti)
2-0 Kamaldeen Sulemana ('77 )
3-0 Mario Pasalic ('85 )

Atalanta mun leika í undanúrslitum ítalska bikarsins í ár eftir að hafa unnið sannfærandi 3-0 sigur á stórliði Juventus í Bergamó í kvöld.

Gianluca Scamacca skoraði af vítapunktinum á 27. mínútu eftir að Bremer handlék boltann vinstra megin í teignum. Scamacca var öruggur, sendi Mattia Perin í vitlaust horn og kom Atalanta yfir.

Ganamaðurinn Kamaldeen Sulemana fór langt með að tryggja Atalanta sigurinn á 77. mínútu er fyrirgjöf Raoul Bellanova fór í gegnum alla varnarlínu Juventus og á Sulemana sem skoraði af stuttu færi.

Mario Pasalic drap síðan endanlega vonir Juventus með þriðja markinu á 85. mínútu eftir að gestunum mistókst að spila boltanum úr vörninni. Miðjumaðurinn Lorenzo Bernasconi komst inn í sendingu, kom boltanum á Nikola Krstovic sem lagði hann til hægri á Pasalic. Króatinn átti skot í fjærhornið framhjá hreyfingarlausum Perin í markinu og þar við sat.

Glæstur sigur Atalanta sem mun mæta Bologna eða Lazio í undanúrslitum. Þetta er í níunda sinn sem Atalanta kemst í undanúrslit, en sex sinnum hefur liðið komist í úrslitaleikinn og unnið keppnina einu sinni.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner