Það mættu þrjú Íslendingalið til leiks í dag þar sem Daníela Dögg Guðnadóttir var í byrjunarliði Álasunds sem tók á móti Amöndu Jacobsen Andradóttur og stöllum í liði Molde.
Íslendingaliðin mættust í 16-liða úrslitum norska bikarsins og stóðu heimakonur í Álasundi uppi sem sigurvegarar, lokatölur 5-1.
Amanda var í byrjunarliði Molde og byrjaði Marie Jóhannsdóttir á bekknum. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Amöndu með Molde en hún hefur farið gríðarlega vel af stað með liðinu. Hún er komin með eitt mark og tvær stoðsendingar eftir að hafa komið inn af bekknum í þremur leikjum í norsku deildinni.
Álasund er í miklu stuði þar sem liðið er búið að vinna fjóra deildarleiki í röð. Sigrarnir eru sex í röð ef bikarleikirnir gegn Kil/Hemne og Molde eru taldir með.
Þriðja Íslendingaliðið sem mætti til leiks er Göteborg sem spilaði frestaðan seinni hálfleik við Örgryte í efstu deild sænska boltans.
Kolbeinn Þórðarson fékk að spila síðustu 20 mínúturnar í leiknum og urðu lokatölur 2-3 fyrir Gautaborg.
Leikurinn hófst í gær en var frestað vegna óláta á áhorfendapöllunum. Hann var kláraður fyrir luktum dyrum í dag.
Aalesund 5 - 1 Molde
Orgryte 2 - 3 Goteborg
18.05.2026 19:28
Mikael skoraði strax eftir meiðsli - Hættu leik vegna óláta




