Táningurinn öflugi Eli Junior Kroupi, sem hefur verið að gera flotta hluti með Bournemouth í enska boltanum, hafnaði portúgalska landsliðinu í vor.
Kroupi er aðeins 19 ára gamall og hefur verið algjör lykilmaður upp yngri landslið Frakka, þar sem hann á 19 mörk í 39 leikjum.
Roberto Martínez landsliðsþjálfari Portúgal viðurkennir að Kroupi hafi hafnað tækifærinu að spila fyrir A-landslið Portúgal þrátt fyrir að vera gjaldgengur í gegnum móður sína sem er af portúgölskum ættum.
„Við settum okkur í samband við hann fyrir landsleikjahléð í mars en hann hafnaði okkur," segir Martínez.
„Hann hefur gæðin til að klæðast portúgölsku treyjunni en hann er búinn að velja Frakkland og við verðum að bera virðingu fyrir þeirri ákvörðun."
Til gamans má geta að Kroupi er einnig gjaldgengur í landslið Fílabeinsstrandarinnar.


