Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 19. maí 2026 20:58
Elvar Geir Magnússon
Arteta sönnun þess hvað góðir stjórar gera þegar þeir fá tíma
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal hefur tryggt sér Englandsmeistaratitilinn, þann fyrsta hjá félaginu síðan hið ósigrandi lið Arsene Wenger vann hann 2004.

Manchester City gerði jafntefli gegn Bournemouth 1-1 og það innsiglaði Englandsmeistaratitil Arsenal. Liðið fær bikarinn á Selhurst Park á sunnudag, eftir leik gegn Crystal Palace í lokaumferðinni.

Þetta er stór stund fyrir Mikel Arteta sem mun verða langlífasti starfandi stjóri í efstu fjórum deildum Englands þegar Pep Guardiola hættir hjá Manchester City.

Þetta er fyrsta stjórastarf Arteta sem tók við í desember 2019. Arsenal hefur endað í öðru sæti síðustu þrjú tímabil. Hann getur svo bætt öðrum titli við í lok mánaðarins þegar Arsenal mætir PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

„Mikel Arteta hefur verið þarna lengi. Besta gjöfin sem hægt er að gefa góðum stjóra er tími. Jú það er hægt að gefa þeim milljónir punda en það þarf að búa til lið, liðsanda og sigurlið. Hann er sönnun þess hvað gerist ef góður stjóri fær tíma," segir Paul Robinson, sérfræðingur BBC og fyrrum markvörður Tottenham.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner