Bournemouth 1 - 1 Man City
1-0 Eli Junior Kroupi ('39)
1-1 Erling Haaland ('95)
1-0 Eli Junior Kroupi ('39)
1-1 Erling Haaland ('95)
Bournemouth tók á móti Manchester City í gríðarlega mikilvægum leik í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði lið mættu í þennan leik þurfandi sigur til að halda draumum sínum á lífi, Bournemouth í baráttu um Meistaradeildarsæti og Man City í titilbaráttunni.
Úr varð jafn og spennandi slagur þar sem tempóið á vellinum var hátt og ekkert gefið eftir. Í fyrri hálfleik fékk Evanilson ótrúlegt dauðafæri en skaut boltanum yfir á einhvern óskiljanlegan hátt og væri þetta eflaust klúður tímabilsins ef Evanilson hefði ekki virst vera naumlega rangstæður.
City komst í góðar stöður og fékk nokkur fín færi en tókst ekki að skapa mikinn usla. Þess í stað svaraði ungstirnið Eli Junior Kroupi með frábæru marki eftir góðan undirbúning frá Adrien Truffert svo staðan var 1-0 í leikhlé.
City komst nálægt því að jafna metin í upphafi síðari hálfleiks en svo gerði Pep Guardiola þrefalda skiptingu sem var mjög sóknarsinnuð breyting fyrir gestaliðið. Hún skilaði sér ekki og voru lærlingar Pep heppnir að fá ekki fleiri mörk á sig í seinni hálfleiknum.
Heimamenn í Bournemouth fengu frábær færi og skutu meðal annars tvisvar sinnum í stöngina en boltinn rataði ekki í netið. City fékk líka færi í skemmtilegum slag en tókst ekki að skora fyrr en Erling Haaland náði að jafna metin með frábæru skoti eftir mikinn atgang seint í uppbótartíma. Það dugði þó ekki til fyrir City og urðu lokatölur 1-1.
Þetta þýðir að Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið.
Þetta þýðir jafnframt að Bournemouth þarf svo gott sem kraftaverk í lokaumferðinni til að eiga möguleika á Meistaradeildarsæti.


