Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
   mán 01. júní 2015 21:57
Hafliði Breiðfjörð
Þóra: Algjört metnaðarleysi hjá dómurunum
,,Hefði frekar viljað fá lægra rankaðan dómara sem hefur áhuga á þessu''
Kvenaboltinn
Þóra Björg Helgadóttir.
Þóra Björg Helgadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Við fengum á okkur tvö klaufaleg mörk sem við vissum að myndu koma, við erum með unga og mjög efnilega stelpu í markinu og er búin að standa sig frábærlega. Fyrstu tvö mörkin voru ólík henni," sagði Þóra Björg Helgadóttir aðstoðarþjálfari Fylkis eftir 0-4 tap heima gegn Breiðabliki í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  4 Breiðablik

„Svo komum við út í seinni hálfleikinn og vorum búin að breyta ákveðnum áherslum og byrjum gríðarlega vel en svo drepur þriðja markið okkur."

„Dómgæslan í kringum það er náttúrulega gríðarlega svekkjandi. Það var bara varið með hendi. Þriðja markið gerir út um leikinn og þá er þetta búið."

„Virkilega svekkjandi að sjá svona dómgæslu og það virðist algjört metnaðarleysi hjá dómurunum. Þetta er svo svekkjandi, við erum með stelpur sem koma hérna sex daga vikurnar og gera allt til að bæta sig og bæta sinn leik með hverju árinu. Svo fá þær þetta, þetta er hrikalegt."


Sigurður Óli Þórleifsson dæmdi leikinn í dag en hann er mjög reynslumikill og þekktari sem línuvörður og hefur verið sem slíkur á leikjum um allan heim.

„Ég hefði frekar viljað fá lægra rankaðan dómara sem hefur áhuga á þessu og sýnir þessu virðingu."

Nánar er rætt við Þóru í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner