Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
banner
   mið 25. febrúar 2026 22:38
Kári Snorrason
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Sölvi var að vonum ánægður eftir leik.
Sölvi var að vonum ánægður eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Helgi braut ísinn.
Davíð Helgi braut ísinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur vann Þrótt í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins fyrr í kvöld. Íslandsmeistararnir komust yfir skömmu fyrir hálfleik en Þróttur jafnaði metin á 83. mínútu.

Skömmu eftir jöfnunarmarkið fékk Brynjar Gautur Harðarson, leikmaður Þróttar, að líta rauða spjaldið og í kjölfarið skoruðu Víkingar tvö mörk sem tryggðu þeim sigurinn og Reykjavíkurmeistaratitilinn.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, eftir leik.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  1 Þróttur R.

„Það er alltaf gaman að vinna titil. Þegar það er bikar í boði þá sækjumst við eftir honum og það tókst í dag. Það voru krefjandi aðstæður. Það þurfti að fresta leiknum um fimmtán mínútur og ræsa út traktor með snjóplóg.

Þetta voru krefjandi aðstæður fyrir bæði lið þannig það eru engar afsakanir fyrir að spila ekki vel. Ég er mjög ánægður með hugarfar leikmanna. Ég vildi að menn myndu sýna að það væri verið að berjast fyrir titli. Þetta er gömul og góð keppni sem við vildum endilega vinna. Ég er virkilega sáttur með hvað leikmenn lögðu í þetta.“


Víkingar voru án fimm lykilmanna sem eru að mæta Mexíkó í vináttulandsleik í nótt. Sölvi var spurður hvort að hann ætlaði að vaka fram eftir og horfa á leikinn.

„Ég ætla að reyna það, veit ekki hvort mér tekst það. Við gerðum okkar nú vonar maður að þeir geri sitt í Mexíkó. Það verður skemmtilegt að fylgjast með leiknum. Stórt tækifæri fyrir strákana, nokkrir að spila sinn fyrsta A-landsleik. Ef ég horfi ekki á hann í kvöld þá horfi ég á morgun.“

Þú hefur engar áhyggjur af þeim þrátt fyrir ólguna í Mexíkó?
„Ég hugsa að þeir séu í góðum höndum. Rúnar Pálma sjúkraþjálfari er búinn að senda mér myndbönd. Þeir eru með öflugt öryggisteymi í kringum sig. Þannig að ég vona að þeir passi upp á þá.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner