Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK var sáttur með stigin þrjú eftir 1-2 sigur á Selfoss á Jáverk-vellinum í kvöld. Sigurinn tryggir áframhaldandi veru HK á toppnum í Inkasso deildinni.
Lestu um leikinn: Selfoss 1 - 2 HK
„Þetta var bara fínn leikur í heildina af okkar hálfu. Við spiluðum ágætlega á milli okkar og sköpuðum ágætis færi á köflum í stöðunni 1-2. Við hefðum getað gert betur og skorað þriðja markið en heilt yfir er ég ánægður með leikinn," sagði Brynjar.
Liðin í kringum HK í toppbaráttunni unnu öll góða sigra í kvöld og verður baráttan sennilega æsispennandi til loka mótsins. HK fékk til sín Zeiko Lewis á láni frá FH og koma hann ekki inná.
„Hann gefur okkur öðruvísi möguleika en mér fannst aldrei móment í leiknum í dag til þess að setja hann inná, þar sem að það lá á okkur í föstum leikatriðum. Hann gefur okkur aðeins aðra vídd í sóknarleikinn."
HK mætir Þrótt Reykjavík í næstu umferð og segir Brynjar það verði hörkuleikur fyrir sína menn.
„Þeir eru búnir að breyta aðeins til hjá sér, þetta eru ungir og ferskir strákar og þeir eru hættulegir fram á við. Hefðu þeir byrjað aðeins betur , væru þeir aðeins meira með í baráttunni en það er ekki útilokað að þeir geri það," sagði Brynjar að lokum.
Athugasemdir






















