Fylkiskonur tóku á móti Aftureldingu núna í kvöld þegar Lengjudeild kvenna hóf göngu sína en liðin mættust á Wurth vellinum í Árbæ.
Fylkir komst tveimur mörkum yfir í leiknum og leiddu 2-0 í hálfleik. Afturelding var þó ekki á því að gefast upp og sýndu gríðarlegan karakter að koma tilbaka og ná að jafna í 2-2 og þar við sat.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 2 Afturelding
„Nátturlega bara vonbrigði eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir og missa þetta niður í jafntefli var nátturlega mikil vonbrigði og við ætluðum okkur sigur í dag og það leit vel út framan af en við glopruðum þessu niður í jafntefli og því fór sem fór." Sagði Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Fylkis eftir leikinn í kvöld.
„Við fengum mjög góð færi þarna og hefðum getað verið búnar að klára leikinn í rauninni en um leið og þær skora þetta fyrsta mark þá fengu þær smá blóð á tennurnar og komu öflugar inn en við náðum ágætis endaspretti hérna og fengum færi þá líka, mjög góð færi og í raun voru þetta varla færi sem þær skora úr þessi sín tvö mörk þannig ef við horfum á það og færa nýtinguna og hvað við vorum að skapa okkur þá voru vonbrigðin enn meiri en heilt yfir getum við bara tekið margt mjög jákvætt út úr þessu."
Nánar er rætt við Gunnar Magnús Jónsson þjálfara Fylkis í spilaranum hér fyrir ofan.
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
























