Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
PSG byrjað að ræða við Bournemouth um kaupverð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Frakklandsmeistarar PSG, sem hömpuðu langþráðum Meistaradeildartitil á dögunum, eru í leit að nýjum miðverði fyrir næstu leiktíð.

Úkraínski miðvörðurinn Illya Zabarnyi er meðal allra efstu manna á óskalista PSG. Hann hefur verið lykilmaður í sterku liði Bournemouth.

Zabarnyi verður 23 ára gamall í september og hefur verið mikilvægur hlekkur undir stjórn Andoni Iraola.

Fabrizio Romano segir að PSG sé byrjað að ræða við Bournemouth um kaup á leikmanninum en stjórnendur Bournemouth vilja helst ekki selja.

Bournemouth er nú þegar búið að missa Dean Huijsen í sumar og þá er Milos Kerkez að öllum líkindum á leið til Liverpool. Að missa þriðja varnarmanninn væri afar erfitt.

Luis Campos hjá PSG hefur fylgst náið með framförum Zabarnyi á undanförnum árum og er sannfærður um að þetta sé rétti tíminn til að festa kaup á honum.

Zabarnyi er þó með fjögur ár eftir af samningi sínum við Bournemouth. Hann er sagður vera efstur á þriggja manna óskalista PSG fyrir miðvarðarstöðuna.

Marquinhos, Willian Pacho, Lucas Beraldo og Presnel Kimpembe eru miðverðir félagsins sem stendur.
Athugasemdir