Birnir Snær Ingason var með betri mönnum vallarins þegar Víkingar lögðu Keflavík 4-1 í Bestu deild karla í Víkinni í kvöld. Þrjár stoðsendingar auk lykilsendingar í fjórða markinu var dagsverk Birnis sem var að vonum kátur í viðtali við Fótbolta.net að leik loknum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 1 Keflavík
„Mjög góður dagur hjá liðinu heilt yfir. Við sköpuðum mikið af færum og mér fannst við geta skorað fleiri mörk. Persónulega fékk ég fullt af færum en náði ekki að skora og svo voru einhver hundrað önnur færi. Kannski ekki nógu gott að fá þetta mark á okkur en fyrir utan það var þetta mjög gott.“
Birnir sem hefur verið inn og út úr byrjunarliði Víkinga á sínum ferli hjá Fossvogsliðinu til þessa hefur byrjað þetta tímabil af krafti og verið með betri mönnum mótsins til þessa og virkar í toppstandi og með sjálfstraustið í botni.
„Aðalmunurinn er hausinn finnst mér, sjálfstraustið og það sem að þjálfarinn er búinn að hjálpa mér að koma með inn í leikinn og hvað ég á að gera. Svo er það formið og allt það sem fylgir þessu. “
Prettyboitjokko var spámaður umferðarinnar hjá Fótbolta.net og tiltók Loga Tómasson sérstaklega í sinni spá. Var Birnir sem meðal annars hefur hannað fatnað fyrir kappann ósáttur við að fá ekki sértakt "shout" frá Prettyboitjokko?
„Nei ég hafði gaman að þessu„ þetta var gott gisk hjá honum. En auðvitað galið hjá honum að gambla á þrjú mörk frá Loga. Það er aldrei að fara að gerast en þetta var bara skemmtilegt.“
Sagði Birnir en viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Athugasemdir






















