Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
   þri 04. júní 2024 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugardalsvöllur
Gaman að sjá hversu margir mættu í skítakulda - „Þær virkuðu bara smá hræddar"
Icelandair
Guðný Árnadóttir.
Guðný Árnadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er bara ótrúlega góð," sagði Guðný Árnadóttir, varnarmaður íslenska landsliðsins, eftir 2-1 sigur gegn Austurríki í gríðarlega mikilvægum leik í undankeppni EM 2025 í kvöld.

„Þetta er ótrúlega skemmtilegt eftir svona mikinn baráttuleik í þessu veðri. Það var geggjuð stemning og ótrúlega gaman að vinna þennan leik."

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  1 Austurríki

Vindurinn hafði mikil áhrif á leikinn en íslenska liðið náði að nýta sér það.

„Þetta var ótrúlega skemmtilegt fyrir okkur. Alvöru íslenskar aðstæður. Við kunnum á þetta. Mér fannst við gera þetta vel í dag," sagði Guðný en íslenska liðið átti sigurinn skilið í kvöld, og einnig í síðasta leik á móti Austurríki.

„Þær virkuðu bara smá hræddar við okkur og það er akkúrat það sem við viljum. Stígandinn í þessu var bara ótrúlega góður."

Hún segir að það hafi verið gaman að fagna þessum mikilvæga sigri með stuðningsmönnunum.

„Það var skemmtilegt að sjá hversu margir mættu í þessum skítakulda. Það var ótrúlega gaman að fagna," sagði bakvörðurinn og bætti við:

„Þetta er allt í okkar höndum og þannig viljum við hafa það."
Slapp
banner
banner