Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   þri 07. nóvember 2023 15:30
Ungstirnin
„Fáránlega vel gert hjá Sædísi"
Kvenaboltinn
Vann sér sæti í A-landsliðinu og byrjaði síðustu tvo leiki.
Vann sér sæti í A-landsliðinu og byrjaði síðustu tvo leiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Átti frábært tímabil með Stjörnunni.
Átti frábært tímabil með Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sædís Rún Heiðarsdóttir, leikmaður Stjörnunar, íslenska landsliðsins og einn efnilegasti leikmaður landsins hefur verið á reynslu hjá Englandsmeisturum Chelsea síðustu daga.

„Hún er bara búin að vera æfa með Englandsmeisturunum Sam Kerr og Lauren James. Þetta er alveg risastór frétt sem mér finnst ekki hafa verið talað og fjallað nægilega mikið um," sagði Arnar Laufdal Arnarsson þáttarstjórnandi hlaðvarpsþáttarins Ungstirnin.

„Ég er ekki nægilega mikið inn í kvennaboltanum erlendis en Chelsea hljómar auðvitað mjög vel á blaði en manni dettur í hug að fara til Englandsmeistarana gæti verið aðeins of stórt stökk, gæti verið erfitt að komast í liðið og halda sæti sínu."

„Sama með mig ég er ekkert brjálaðslega inn í kvennaboltanum í Englandi en ég held að það sé ekki mikið af ungum stelpum þarna að springa út, þetta séu mest stelpur á aldrinum 25-27 ára þarna í ensku deildinni þannig það er þá klárlega tími fyrir Sædísi að koma sér inn í hlutina ef þetta gengur eftir en bara fáránlega vel gert hjá henni," bætti Bjarni Þór Hafstein annar þáttarstjórnandi þáttarins við.

„Tímabilið hennar hérna í Bestu deildinni í sumar minnti mann bara á tímabilið sem Trent Alexander-Arnold átti þegar að Liverpool varð Englandsmeistari, lagði upp endalaust af mörkum og var auðvitað mest af öllum leikmönnum deildarinnar í liði umferðarinnar." Bætti Arnar Laufdal svo endanlega við.

Sædís Rún er vinstri bakvörður Stjörnunnar. Chelsea er sigursælasta félagið í enska kvennaboltanum og hefur náð frábærum árangri undir stjórn Emmu Hayes undanfarin ár.

Sædís Rún er 19 ára gömul en hún sprakk algjörlega út í Bestu deildinni í sumar og var valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar hér á Fótbolti.net. Hún átti frábært tímabil með Stjörnunni, var níu sinnum valin í lið umferðarinnar og vann sér inn sæti í A-landsliðinu í kjölfarið. Hún er búin að spila þrjá A-landsleiki en hún byrjaði síðustu tvo leiki gegn Danmörku og Þýskalandi.
Ungstirnin - Við lifum í heimi Jude Bellingham
Stöðutaflan England England - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Manchester City W 16 14 0 2 47 13 +34 42
2 Man Utd W 16 10 4 2 35 16 +19 34
3 Chelsea W 16 10 3 3 29 13 +16 33
4 Arsenal W 14 8 5 1 26 10 +16 29
5 Tottenham W 16 9 2 5 26 24 +2 29
6 London City Lionesses W 16 6 1 9 18 27 -9 19
7 Brighton W 15 5 2 8 19 20 -1 17
8 Everton W 16 5 2 9 18 26 -8 17
9 Aston Villa W 16 4 4 8 22 36 -14 16
10 West Ham W 16 3 2 11 15 35 -20 11
11 Liverpool W 16 2 4 10 15 27 -12 10
12 Leicester City W 15 2 3 10 8 31 -23 9
Athugasemdir
banner
banner