Gunnar Rafn Borgþórsson þjálfari Selfoss var í miklu stuði eftir frábæran sigur á Fram í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Leiknum lauk með 0-2 sigri Selfyssinga.
Gunnar byrjaði á því að fá skammir frá fréttaritara Fótbolti.net eftir í leik fyrir að hafa ekki boðið uppá skemmtilegri fótbolta á svona fallegu sumarkvöldi. Gunnar tók þeim skömmum þó ekki alvarlega.
„Já, bara fyrirgefðu."
„Mér fannst þetta bara þrælskemmtilegt og ánægjulegt. Ég horfi kannski öðruvísi á fótbolta en þú en mér fannst þetta ágætisleikur. Bæði lið voru að spila þéttan varnarleik og gáfu lítil færi á sér. Við færðum boltann ágætlega, vissulega stöðubarátta og menn að bítast um boltann. Mér finnst það fallegt, ekki þér. Þá er það bara þannig."
Það var ekki fyrr en á 75' mínútu sem Selfyssingar settu seinna markið. Gunnar var þó ekki hræddur við að missa leikinn í framlengingu.
„Nei, ég leyfði mér ekki að hugsa það langt. Við vorum nokkuð öruggir með þetta, ég var frekar óöruggur með síðustu 10' í fyrri hálfleik. Við komum mjög sterkir í seinni hálfleik."
Gunnar segir að það væri gaman að fá Suðurlandsslag í undanúrslitum, Selfoss-ÍBV.
„Það væri ógeðslega gaman, væri hrikalega skemmtilegt. Fylla stúkuna af sunnlendingum."























