Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 06. febrúar 2024 22:26
Brynjar Ingi Erluson
Enski bikarinn: Leeds keyrði yfir Plymouth í framlengingu
Wilfreid Gnonto skoraði fyrsta mark Leeds
Wilfreid Gnonto skoraði fyrsta mark Leeds
Mynd: EPA
Plymouth 1 - 4 Leeds
0-1 Wilfried Gnonto ('66 )
1-1 Brendan Galloway ('78 )
1-2 Crysencio Summerville ('97 )
1-3 Georginio Rutter ('111 )
1-4 Ryan Hardie ('117 , sjálfsmark)

Leeds United er komið áfram í 5. umferð enska bikarsins eftir 4-1 sigur á Plymouth í framlengdum leik. Leedsarar skoruðu þrjú mörk í framlengingunni og mæta Chelsea eða Aston Villa.

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það ítalski leikmaðurinn Wilfried Gnonto sem kom Leeds á bragðið. Gnonto komst inn í sendingu Glen Kamara, tók nokkrar gabbhreyfingar áður en hann þrumaði boltanum á mitt markið.

Brendan Galloway svaraði fyrir Plymouth tólf mínútum fyrir leikslok er hann mætti aukaspyrnu Ashley Phillips á fjærstönginni. Leedsarar vildu fá rangstöðu á Galloway en fengu ekki.

Joe Gelhart gat landað sigrinum fyrir Leeds áður en venjulegum leiktíma lauk, en tilraun hans hafnaði í tréverkinu.

Leikurinn var framlengdur og þar höfðu Leedsarar betur og það með yfirburðum.

Crysencio Summerville skoraði sitt fyrsta mark í enska bikarnum fyrir Leeds. Hann færði boltann frá vinstri og yfir á hægri áður en hann smellti boltanum í netið. Í síðari hluta framlengingar skoruðu gestirnir tvö til viðbótar.

Plymouth tapaði boltanum á eigin vallarhelmingi og var það Patrick Bamford sem fann Summerville. Hollendingurinn lagði boltann á Rutter sem náði ekki besta skotinu, en það dugði þó til að koma boltanum yfir línuna.

Sex mínútum síðar kom fjórða markið eftir að Ryan Hardie stýrði hornspyrnu Ilia Gruev í eigið net og þar við sat. Leeds komið áfram og mætir þar Aston Villa eða Chelsea.
Athugasemdir
banner