Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 06. febrúar 2024 22:01
Brynjar Ingi Erluson
Enski bikarinn: Southampton heimsækir Liverpool - Coventry flaug áfram
Coventry City og Southampton eru komin áfram í fimmtu umferð enska bikarsins eftir þægilega sigra í kvöld.

Coventry vann auðveldan 4-1 sigur á Sheffield Wednesday á Coventry Building Society-leikvanginum í kvöld.

Kasey Palmer gerði fyrsta mark Coventry á 3. mínútu en Wednesday svaraði sjö mínútum síðar með marki Bailey Cadamarteri.

Callum O'Hare skoraði tvö mörk fyrir Coventry á sex mínútna kafla, sem dró allan þrótt úr Wednesday, því aðeins tveimur mínútum síðar gerði Haji Wright fjórða og síðasta mark Coventry í leiknum.

Coventry spilar við Maidstone United í 5. umferðinni.

Sekou Mara skoraði þá tvö mörk í 3-0 sigri Southampton á Watford.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum en Southampton gekk á lagið í þeim síðari. Mara skoraði tvö mörk á sex mínútum áður en Che Adams gulltryggði sigurinn fimmtán mínútum fyrir leikslok.

Southampton heimsækir Liverpool í 5. umferð bikarsins.

Leeds er þá að vinna Plymouth, 2-1, en framlenging er í gangi sem stendur. Crysencio Summerville kom Leeds yfir í framlengingunni en síðari hlutinn er eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Coventry 4 - 1 Sheffield Wed
1-0 Kasey Palmer ('3 )
1-1 Bailey Cadamarteri ('10 )
2-1 Callum OHare ('50 )
3-1 Callum OHare ('56 )
4-1 Haji Wright ('58 )

Southampton 3 - 0 Watford
1-0 Sekou Mara ('52 )
2-0 Sekou Mara ('58 )
3-0 Che Adams ('76 )
Athugasemdir
banner
banner
banner