Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 06. febrúar 2024 21:27
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Benoný Breki hetja KR gegn HK
Benóný Breki skoraði sigurmarkið í uppbótartíma
Benóný Breki skoraði sigurmarkið í uppbótartíma
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 2 - 3 KR
0-1 Benoný Breki Andrésson ('7 )
1-1 Arnþór Ari Atlason ('58 )
1-2 Sigurður Bjartur Hallsson ('79 )
2-2 Birnir Breki Burknason ('82 )
2-3 Benoný Breki Andrésson ('90 )

KR-ingar unnu fyrsta leik sinn í A-deild Lengjubikarsins í kvöld er liðið vann dramatískan 3-2 sigur á HK í Kórnum.

Benoný Breki Andrésson kom KR-ingum yfir á 7. mínútu en fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik.

Á 58. mínútu jafnaði Arnþór Ari Atlason metin fyrir HK en Sigurður BJartur Hallsson svaraði tuttugu mínútum síðar og kom KR í 2-1 forystu.

Hinn 17 ára gamli Birnir Breki Burknason tókst að jafna metin fyrir HK þremur mínútum eftir mark KR-inga og var útlit fyrir að liðin myndu deila stigunum, en Benoný Breki hélt ekki.

Hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og tryggði KR-ingum stigin þrjú.
Athugasemdir
banner
banner