Bayer Leverkusen er aðeins tveimur leikjum frá því að jafna met Bayern München í öllum keppnum.
Leverkusen vann Stuttgart, 3-2, eftir spennuleik í 8-liða úrslitum þýska bikarsins í kvöld
Lærisveinar Xabi Alonso hafa nú farið í gegnum 30 leiki án taps, en liðið er aðeins tveimur leikjum frá því að jafna metið í Þýskalandi og aðeins annað liðið til að ná þessum áfanga.
Bayern München fór í gegnum 32 leiki án þess að tapa leik frá 2019 til 2020.
Leverkusen hefur unnið 27 leiki og gert þrjú jafntefli í öllum keppnum á tímabilinu. Liðið er í efsta sæti þýsku deildarinnar, komið í undanúrslit bikarsins og í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Bayer Leverkusen are only the second team in German football history to go 30 games unbeaten across all competitions:
— Squawka (@Squawka) February 6, 2024
WWWWDWWWWWWWWWWWWWWDWDWWWWWDWW
Two more games and they equal Bayern’s all-time record. ???? pic.twitter.com/fLydFaQ2Ml
Athugasemdir



