Mallorca 0 - 0 Real Sociedad
Real Mallorca og Real Sociedad gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska konungsbikarsins í kvöld.
Mallorca hefur ekki verið að gera neinar rósir í deildinni til þessa og var því smá tilbreyting fyrir stuðningsmenn að fara inn í þetta bikarævintýri.
Gestirnir í Sociedad vildu fá vítaspyrnu á 10. mínútu leiksins er Ander Barrenetxea var tekinn niður í teignum, en fengu ekki. Abder Prats fékk besta færi Mallorca í fyrri hálfleiknum er hann setti boltann framhjá af stuttu færi áður en Umar Sadiq fékk enn betra færi hinum megin á vellinum er hann skallaði fyrirgjöf Barrenetxea yfir markið.
Sadiq, framherji Sociedad, fékk tvö mjög góð færi til að skora fyrir Sociedad en fór illa að ráði sínu. Sá mun eflaust naga sig í handarbökin í kvöld.
Hann fær hins vegar annan séns í lok febrúar þegar liðin mætast öðru sinni í bikarnum, en þá eigast liðin við á heimavelli Soceidad í San Sebastian.
Athugasemdir



