Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   þri 06. febrúar 2024 22:09
Brynjar Ingi Erluson
Þýski bikarinn: Leverkusen í undanúrslit eftir spennuleik
Leverkusen er komið í undanúrslit
Leverkusen er komið í undanúrslit
Mynd: EPA
Bayer 3 - 2 Stuttgart
0-1 Waldemar Anton ('11 )
1-1 Robert Andrich ('50 )
1-2 Chris Fuhrich ('58 )
2-2 Amine Adli ('66 )
3-2 Jonathan Tah ('90 )

Lærisveinar Xabi Alonso í Bayer Leverkusen eru komnir í undanúrslit þýska bikarsins eftir að hafa unnið dramatískan 3-2 sigur á Stuttgart á Bay-Arena í kvöld.

Heimamenn í Leverkusen fengu enga óskabyrjun. Waldemar Anton stangaði hornspyrnu Angelo Stiller í netið á 11. mínútu leiksins.

Stuttgart var betri aðilinn stærstan hluta fyrri hálfleiks en fyrsta skot Leverkusen á markið kom eftir rúman hálftíma er Alexander Nübel varði aukaspyrnu Alex Grimaldo. Mark var þá dæmt af Patrick Schick áður en hálfleikurinn var úti.

Leverkusen svaraði í þeim síðari. Robert Andrich jafnaði metin með laglegu skoti fyrir utan teig á 50. mínútu, en átta mínútum síðar fékk Leverkusen annað högg er Chris Fuhrich skoraði með flottu skoti við vítateigslínuna.

Heimamenn létu það ekki á sig fá og jöfnuðu aftur. Varamaðurinn Amine Adli gerði það áður en Florian Wirtz lagði upp sigurmark Leverkusen með laglegri sendingu á hausinn á Jonathan Tah sem fagnaði af mikilli innlifun.

Leverkusen er nú líklegasta liðið til að vinna bikarinn, en það er eina efstu deildar liðið sem er komið í undanúrslit. Borussia Mönchengladbach á möguleika á að komast þangað ef liðið vinnur Saarbrucken á morgun.
Athugasemdir
banner
banner