Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen hefur síðustu daga verið orðaður við Galatasaray í Tyrklandi en hann verður ekki leikmaður félagsins fyrr en mögulega næsta sumar.
Félagaskiptaglugginn í Tyrklandi lokar á föstudaginn en ESPN segir frá því að ekkert verði af því að Eriksen fari til Galatasaray áður en glugginn lokar.
Galatasaray ætlar hins vegar að reyna að fá hinn 31 árs gamla Eriksen frá Manchester United næsta sumar.
Eriksen mun því klára tímabilið með Man Utd en hann er samningsbundinn félaginu til 2025.
Eriksen er enn með hlutverk í plönum Erik ten Hag en hann er ekki lengur byrjunarliðsmaður eftir að hinn bráðefnilegi Kobbie Mainoo kom fram á sjónarsviðið.
Síðasti byrjunarliðsleikur Eriksen með Man Utd var gegn Tottenham þann 14. janúar.
Athugasemdir


