Ivory Coast 1 - 0 DR Congo
1-0 Sebastien Haller ('65 )
Fílabeinsströndin mun leika til úrslita í Afríkukeppninni en leiðin þangað hefur verið ansi mögnuð.
Liðið hafnaði í 3. sæti riðilsins og þjálfarinn var rekinn en liðinu tókst að komast áfram sem eitt af bestu liðunum í 3. sæti.
Emerse Fae, bráðabirgðaþjálfari liðsins hefur nú tekist að vinna þrjá leiki í röð og koma liðinu alla leið í úrslitin. Sebastian Haller var hetja liðsins en hann skoraði eina mark leiksins.
Heppnin var aðeins með honum en skot hans fór í jörðina og flaug yfir markvörð Kongó og í netið.
Fílabeinsströndin mætir Nígeríu í úrslitum á sunnudaginn en á laugardaginn mætast Suður Afríka og Kongó í leik um þriðja sætið.
Athugasemdir


