Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Afríkukeppnin í dag - Komast heimamenn í úrslit?
Simon Adingra og félagar ætla alla leið
Simon Adingra og félagar ætla alla leið
Mynd: EPA
Undanúrslit Afríkukeppninnar fara fram í dag. Heimamenn í Fílabeinsströndinni gætu komist í úrslit eftir ömurlega byrjun á mótinu.

Nígería og Suður-Afríka eigast við í fyrri undanúrslitaleiknum en hann hefst klukkan 17:00.

Suður-Afríka hefur gert frábæra hluti á mótinu og komist lengra en búist var við. Stærsta próf liðsins verður gegn Nígeríu, sem er talið sigurstranglegasta lið keppninnar.

Klukkan 20:00 mætast Fílabeinsströndin og Kongó. Fílabeinsströndin hafnaði í 3. sæti A-riðils og komst áfram sem eitt af liðunum með besta árangurinn í því sæti, þó enginn bjóst við að liðið færi áfram.

Þjálfarinn var rekinn og Emerse Fae fenginn til að stýra liðinu út keppnina, en hann hefur unnið báða leikina sem hann hefur stýrt og leitar nú að þriðja sigrinum. Það verður ekki auðvelt verk gegn Kongó, sem er með leikmenn á borð við Yoane Wissa, Silas, Arthur Masuaku og Chancel Mbemba í sínum röðum.

Leikir dagsins:
17:00 Nígería - Suður-Afríka
20:00 Fílabeinsströndin - Kongó
Athugasemdir
banner
banner