Nigeria 1 - 1 South Africa (4-2 í vítaspyrnukeppni)
1-0 William Ekong ('67 , víti)
1-1 Teboho Mokoena ('90 , víti)
Nígería er komið í úrslit Afríkukeppninnar eftir sigur í ótrúlegum leik gegn Suður Afríku í kvöld.
Fyrirliðinn William Troost-Ekong kom Nígeríu yfir með marki úr vítaspyrnu.
Victor Osimhen hélt að hann væri að gulltryggja Nígeríu sæti í úrslitunum þegar hann skoraði undir lok leiksins. Leikurinn var hins vegar stöðvaður á meðan dómarinn skoðaði aðdragandann í VAR.
Brotið var á Percy Tau innan vítateigs Nígeríu og dómarinn dæmdi því markið af Osimhen og gaf Suður Afríku víti. Teboho Mokoena fór á punktinn og skoraði og tryggði Suður Afríku í framlengingu.
Ekkert var skorað í framlengingunni svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Þar reyndist Stanley Nwabili markvörður Nígeríu vera hetjan en hann varði tvær vítaspyrnur. Kelechi Iheanacho skoraði úr síðustu spyrnu Nígeríu og tryggði um leið liðinu í úrslit.
Liðið mætir annað hvort Fílabeinsströndinni eða Kongó í úrslitum á sunnudaginn.


