Iran 2-3 Katar
1-0 Azmoun ('4 ),
1-1 Abdulsallam ('17 )
1-2 Afif ('43 )
2-2 Jahanbakhsh ('51 úr víti)
2-3 Ali ('82 )
Rautt spjald: Khalilzadeh ('90 Íran)
Katar er komið í úrslit í Asíubikarnum og mætir spútníkliði Jórdaníu. Katar er ríkjandi Asíumeistari og getur verið fyrsta liðið síðan Japan vann mótið tvisvar í röð árið 2000 og 2004.
Katar tók á móti Íran í dag sem var eitt af sigurstranglegustu liðunum í keppninni.
Íran komst yfir snemma leiks þegar Sardar Azmoun skoraði þegar hann tók boltann á lofti með bakið í markið. Katar tókst að svara með tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiks.
Íran jafnaði metin snemma í síðari hálfleik þegar liðið fékk vítaspyrnu eftir að boltinn hafði farið í höndina á varnarmanni Katar. Alireza Jahanbakhsh steig á punktinn og skoraði.
Almoez Ali reyndist hetja Katar þegar hann fékk boltann inn á teignum og setti boltann í netið við litla sem enga mótspyrnu.
Shojae Khalilzadeh rændi upplögðu marktækifæri undir lok leiksins og fékk réttilega að líta rauða spjaldið.
Katar mætir Jórdaníu í úrslitum á laugardaginn.

