Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Augljóst að Toney verður líklega seldur í sumar"
Thomas Frank, stjóri Brentford, viðurkennir það að sóknarmaðurinn Ivan Toney verði líklega seldur frá félaginu í sumar.

Toney sneri aftur úr veðmálabanni í síðasta mánuði og hefur hann skorað tvö mörk í þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Hann hefur undanfarna mánuði verið mikið orðaður við Arsenal og Chelsea, en Frank er vel meðvitaður um það að Brentford getur ekki haldið í Toney mikið lengur. Leikmaðurinn mun aðeins eiga ár eftir af samningi sínum næsta sumar.

„Það er nokkuð augljóst að Ivan Toney verður líklega seldur í sumar," sagði Frank við Tipsbladet.

„Ég held að það séu ekki margir sóknarmenn í heiminum sem eru betri en hann akkúrat núna."
Athugasemdir
banner
banner