Þó Karim Benzema hafi haldið kyrru í herbúðum Al-Ittihad í janúar, þá er ekki allt með kyrrum kjörum.
Benzema kom til félagsins síðasta sumar frá Real Madrid. Hann og Nuno Espirito Santo náðu ekki vel saman hjá félaginu sem endaði með því að Nuno var rekinn. Marcelo Gallardo tók við keflinu en ekki skánaði það. Benzema var fljótur að lenda upp á kant við hann.
Benzema var orðaður við félög í Evrópu í janúar en endaði á því að vera áfram í herbúðum Al-Ittihad.
Hann hefur verið í fríi að undanförnu en sneri aftur til æfinga fyrr í þessari viku. Þar sauð upp úr eftir að Gallardo bað hann um að æfa einn seinni hluta æfingarinnar.
Benzema neitaði að gera það og yfirgaf æfingasvæðið stuttu síðar. Það er Marca sem segir frá. Ekki er búist við því að Benzema verði í hóp gegn Al Tai í kvöld.
Athugasemdir


